Pamela í Dallaz í móðurhlutverkinu:)
Flott Föt:)
Hvað veistu um Helguna?
23.10.2006 22:10:24 / marleyfan

Nýtt blogg

Er að huxa um að flytja bloggið mitt er að vinna í nýja kikkið á :) það er ekkert mál að setja myndir í blogg og mér finnst það alveg magnað á bara eftir að færa alla tenglana yfir og þá get ég flutt alveg á

www.helgangunn.blog.is

Segið mér svo hvað ykkur finnst:)

LeitEr

Helgan í bloggflutningum:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 15:04:11 / marleyfan

Þetta er ekki skinka þetta er tungan í honum!!! já Tunguna af....

Góð nýja IKEA auglýsingin hehe þar sem kallinn ætlar að vera voða rómo og byðja kellunnar úti í náttúrunni en eina vandamálið var að IKEA blasti við henni svo hún tók ekki eftir því hversu krúttlegur hann ætalði að vera heldur bara IKEA múhahahahahah ég elska IKEA og ég sagði við minn heittelskaða þegar þessi auglýsing byrtist á skjánum að svona yrði ég ef hann tæki upp á því að byðja mín nálægt IKEA hehe ekki bara af því að IKEA væri rétt hjá heldur myndi ég aldrei eiga von á því... og hann sagði náttúrulega ég myndi aldrei fara með þig nálægt IKEA Helga mín:) Við fjölskyldan ætlum að reyna að skella okkur suður í viku fyrir jól og þá verður sko farið í IKEA takk fyrir...

Nú á kellan orðið allt Heilsubælið, Fasta liði og tónleika með Bobbaranum í tölvunni bara sátt með það:)  Maður getur alltaf horft á Heilsubælið þó maður kunni það utan að... ég er nú einu sinni þannig að mér finnst fátt leiðinlegra en að lesa og hef nú ekki klárað margar bækur og reyndi hvað ég gat að komast hjá því að lesa skólabækurnar kannski vegna þess að ég held að ég sé lesblind (á eftir að láta tékka á því samt)... les stundum sömu setninguna 10 sinnum en veit samt ekkert hvað ég var að lesa svo er ég endalaust lengi að lesa í ofanálag. Leiði gjarnan hugan að einhverju allt öðru en því sem ég er að lesa og það eru til nokkrar myndir í fjölskyldualbúmum heim þar sem ég er að lesa fyrir próf og þá steinsofandi ofan á öllu námsefninu hehe;) en ég náði nú samt að klára stúddarann tók suma áfanga 5 sinnum og svona hehe... En svo get ég lært áramótaskaup og bíómydnir og þætti utanað:) vinir mínir Helgi og Hlynur sögðu líka alltaf að ef að námsefnið væri á videospólum þá væri ég sko með 10 í öllu.

Jæja góða helgi og gangið hægt yfir gleðinar þröskuld...

Hver nennir að telja hversu oft IKEA kemur fyrir í þessu bloggi????

LeitER

                                     Helgan                                    

(Sem getur ekki beðið eftir að komast í IKEA tihí:))


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 17:32:40 / marleyfan

Þetta er notla lögreglumál...

Við famelían skelltum okkur á Akureyri til Birnu mágkonu á föstudaginn. Fengum nátturulega rosa bakkelsi eins og vanin er þegar maður stingur nebbanum inn til þeirra í móasíðunni:) Ari Hrannar sofnaði svo klukkan 4 og foreldrarnir gripu þá tækifærið og skruppum í bónus og RL magasín:) meðan frumburðuinn svaf hjá frænku sinni:) eftir eins og hálf tíma fjarverru fannst mér við hafa verið aðeins of lengi en við komum til baka þá svaf prinsinn nátturlega bara enþá:) og við biðum svo eftir að hann vaknaði í hátt í tvo tíma í viðbót svo ég hefði nú aldeilis getað haldið ró minni í RL búðinni:) við fjárfestum í nýjum koddum þar sem húsbóndinn á heimilinu var komin með krónískan hálsríg hehe og þýddi þá ekki að kaupa neitt annað en Delux;) handa kauða:) líkaminn minn ákvað að lýsa þessum viðbrygðum með bakverkjum og með því en það venst vonandi annars fær maður bara extra nudd fyrir vikið ekki slæmt það;):haha::haha:

Áður en við lögðum af stað heim kom ástmaður minn við í Brynju fyrir mig íssjúklingin og var slátrað einum bragðaref á mettíma *slef* ussss ég held ég geti borðað endalaust af ís og ekki verra ef það er Brynjuís:) Á leið okkar frá Akureyri þá sáum við fullt af bílum stopp við húsasmiðjuna og vorum alveg viss um að það væri mega árekstur en nei þá var löggimann með eftirlit bæði hjá þeim sem voru að koma til Akureyris og frá. Minn maður var látin blása og sjáiði ekki í anda að hann væri að keyra undir áhrifum með lítið barn aftrí hummm en hann fékk grænt ljós og fékk að halda áfram:) en hversu líklegt er að mæla fólk undir áhrifum klukkan hálf 9 á laugardagskvöldi væri nær að mæla um nóttina en ætli þeir nenni því nokkuð þá hehe:)

Ég er nú mjög lögguhrædd og hef alltaf verið allavega alveg frá því ég fékk bílpróf þar sem ég bjó á Selfossi þar sem Löggan er þekkt fyrir að sekta fólk og stoppa við alskonar aðstæður, eitt gott dæmi um hversu klikk löggan er þarna þá lánaði ein lögga bróður sínum bílinn sinn. Bróðirinn segir við löggubróður sinn bíllinn þinn er ljóslaus. Löggubróðirinn segir já skelltu þér bara í Fossnesti og skiptu um peru fyrir mig. Allt í góðu hann heldur á stað á bíl bróður síns (til að kaupa peru) og fyrr en varir er hann bara lentur í bláum diskóljósum og keyrir út í kannt út kemur löggubróðirinn og segjir: heyrðu vinur þú ert ljóslaus öðrum megin að framan og þá svarar bróðirin já ég veit  láttu ekki svona maður.. Herðu góði segjir löggubróðirinn og tekur upp blokkina og sektar hann... ARrrg hann sektaði bróðir sinn fyrir að vera ljóslaus og það á hans bíl sem hann lánaði honum skömmu áður hversu kikk?? en allavega hægt að segja að hann láti ganga jafnt yfir alla og ekki hlífa neinum hvorki fjölskyldu né vinum.. Hann hefur svo sektað bróðir sinn oft eftir þetta.. Þessi sama lögga lenti svo í vinnuslysi á einni vaktinni sem hann var á vakt með konu og slysið var barn.... Gaman að þessu. Það er svona misjafn sauður í mögu fé eða eitthvað...

Var að skópla í mig einum bragðaref ummm það ætti að vera hægt að fá líters bragðaref tæki mig örugglega ekki nema 8 mín að slátra einum svoleiðis:) hvað ætli ég borði marga bragaðrefa í einni viku örugglega að meðaltali 4 múhahah en það er í góðu lagi hehe er byrjuð aftur í ræktinni og ljóma alveg með það:) feðgarnir bralla bara eitthvað saman á meðan ég skrepp og hristi af mér óléttuspekið:haha::haha: sem verður nú vonandi fljótlega farið og vonandi fer sixpakið að lýta dagsins ljós aftur :)þetta er svo gaman mig klæjaði alveg í puttana fyrst lagaði bara að taka endalaust á því en maður verður nú að hemja sig passa mjólkubúið og svona:)

Hvað er samt málið með sjónvarpsdagskránna á föstudögum og laugardögum er þetta einhver samstaða til að halda videoleigunum gangandi ... maður spyr sig.. kellan skellti sér á leiguna í gærkvöldi til að finna kannski eitthvað álytlegra en þá voru nátturlega allir Dallazbúar með tölu að horfa á Video og leigan nánast tóm en hitti samt á ágætis mynd:) sem heitir failure to lunch... frekar krúttleg mynd... en jæja Vá þetta er orðið langt blogg það er ýmist bloggræpa eða stífla hehe:haha::haha:

LeitEr

ÍSabella grís:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 13:59:41 / marleyfan

Spreytið ykkur á þessu

lesandi góður:

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

 

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?

 




» 7 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 12:38:37 / marleyfan

Matargatið.. muniði eftir Matargatinu í ´89 á stöðinni?? ég man...

Mín er búin að vera á leiðinna að blogga í 5 daga og þá er komið að því hehe :S loksins gef ég mér tíma í það. Var fyrir sunnan hjá mömmu og pabba í 10 daga og það var bara ljúft gaman að vera með fjölskyldunni sinni, þvílíkt dekrað við okkur Ara Hrannar.  Það var sko mikið borðað og fékk fráflutta heimasætan ansi oft að stjórna hvað væri í matinn og alltaf þegar ég kem heim til mömmu og pabba er eitt það fyrsta sem mér langar í er ánamaðkamatur eins og við systkinin kölluðum það í denn eða hakk, spaketí, kartöflumús og bernes ummm ekkert smá gott og pabbi gerir sko besta hakk í heimi:) og nafnið ánamaðkamatur er vegna þess að við blöndum þessu öllu saman og þá er þetta eins og matur með ánamöðkum umm girnilegt ekki satt múhahah:) og þess má geta að við blöndum þessu enþá öllu saman það er lang best þannig .. svo langar mig alltaf í gúllas og fékk að sjálfsögðu bæði;) svo var notla gerðir eftirréttir sem ég sá um og ekkert einu sinni hehe bumban minkaði ekki mikið á meðan ég var þarna hehe;) svo var að sjálfsögðu farið í pullarann og slátraði ég tveimur breiðlokum ummmm *slef*..  seinasta kvöldið okkar var svo heljarinnar matur lambalæri og með því og var öll fjölskyldan saman kominn 13 manns takk fyrir:) bara gaman og nýjasti tengdasónurinn var mættur á svæðið líka:)  rosalega gaman að vera með fjölskyldunni sinni og ætlum við Ari Hrannar að vera dugleg að fara á Hótel mömmu og pabba meðan ég er í fæðingarorlofi hann verður að kynnast mínu fólki líka:) Hann fékk mikla athygli frá öllum litli gullmolinn minn og þótti það ekki slæmt.:haha::haha:

Ég fór í slatta af göngutúrum með Helgu mágkonu og Birgittu og Gunnari það var sko ekki slæmt enda brilliant veður:) skellti mér svo með Helgu og Birgittu á mömmumorgunn í selfosskirkju og ýmislegt fleira þetta var bara rosa gaman og mikið hlegið eins og alltaf þegar við fjölskyldan erum saman kominn:) vorum eitt kvöldið að spjalla heim og svo barst það í tal þegar einn frændi minn skellti sér á kamarinn á Þjóðhátið og remdist með tilheyrandi óhljóðum og svo allt í einu öskrar hann " nau nau nau kallið á ljósmóðir þessi er örugglega 20 merkur" múhahah gaman að sitja á kamrinum við hliðina múhahahha fór einmitt að huxa þá þegar ég fór fyrst á tojarann að tefla við páfan eftir að ég átti Ara Hrannar og var doldið kvíðinn því mér var sagt að það væri ekki sérlega gott að kúka eftir fæðingu og sérstaklega ekki ef maður hefur verið saumaður og gott ef sá hefur ekki náð 20 mörkum múhahah:haha::haha:

Jæja kominn mjaltatími og svo skella sér út að labba með prinsinn:)

Mín fjárfesti í sippubandi og með teljara og öllum græjum:)

Ætla svo að fara að skella mér í ræktina og byrja rólega að koma mér í form... svo ég geti farið að syngja krókurin hér hvar og hvenær sem er ég er kominn í gamla formið .......

LeiTer

Matargatið:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 17:24:36 / marleyfan

Suðurferð

Jæja þá erum við að fara suður og í fyrsta sinn með Ara Hrannar í ferðalag:) við förum með hann í sex vikna skoðun í fyrramálið (spennandi að vita hvað sá stutti er orðinn stór og þungur) og svo brunum við suður úff hvað ég hlakka til að hitta alla:) við Ari verðum svo á Selfossi fram að mánaðarmótum:) á hótel pabba og mömmu:) gaman gaman:)

gleði vikunnar hjá mér : er farin að komast í Diesel gallabuxurnar mínar aftur jibbí;)

Svo held ég að ég fjárfesti í handlóðum og sippubandi svo ég geti aðeins byrjað að hamast hérna heima verð notla að passa mjólkina og guð hvað ég hlakka til að komast á fullt aftur í ræktina;) er að murkast úr hreyfingarleysi en ég ætla nú að hafa gullmolan á brjósti til allavega 6 mánaða ef allt gengur áfram eins vel. það er notla efst á blaði:) ég þyngdist sko um 20kílógrömm á meðgöngunni og það eru 15 farin hehe 5 eftir sleip í stærðfræðinni:)

leiTeR

Helgan á suðurleið


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 18:30:36 / marleyfan

bjúgurinn burtu..........

Já maður nýtir tækifærið á meðan prinsinn á heimilinu sefur til að skrifa smá hérna:) Merkilegt hvað maður getur stundum verið tómur í headpakningunni og veit bara ekki hvern fjáran maður á að skirfa um gjarnan kallað bloggstífla eða ritstifla og svo þess á milli er maður með munnræpu eða bloggræpu:) gaman að þessu.

Nú er ég búin að vera mamma í bráðum 6 vikur og ég fíla það í tætlur það er reyndar bara best í heimi. Það kemur mér svo sem ekki á óvart að ég skuli fíla móðurhlutverkið þar sem ég hef alltaf verið mikil barnagæla og lék mér með dúkkurnar mínar eins og þær væru lifandi.. skipti á þeim og gaf þeim pela og allt tilheyrandi ( þá var nú gott að eiga yngri systkini til að setja alvöru bleyjur á "börnin" mín) Mamma var ekkert rosalega tíminn að láta mig fá endalausar bleyjur enda eru þær ekki fríkeypis, svo hún lét mig frekar fá taubleyjur og blast utan um og ég ljómaði nátturulega eins og sól í heiði með það;) þegar maður hætti að leika sér með dúkkurnar þá tók alvaran við og maður fór að passa börn og ég elskaði það var alltaf að passa og passaði meira að segja fyrir umsjónarkennarann minn í mörg ár. Auðvitað sótti kellan líka barnfóstru námskeið og er ég nú með skírteini upp á það ef þið efist hehe:):haha: Ég þótti líka frekar eftirsótt pössunarpía því eins og áður hefur komið fram þá er ég algjör snyrtipinni og þegar að börnin sváfu þá tók ég náttúrulega heimilið í gegn hjá vinnuveitandanum og þá erum við að tala um ryksuga og skúra og þurka af og allan pakkan enda fékk ég gjarnan extra laun fyrir vikið. Það kom sér náttúrulega vel fyrir þreyttar húsmæður að sleppa við húsverkin þegar heim var komið:) pant fá barnapíu eins og mig múhahahaha

En mín er sko komin með hringana mína tvo aftur á rétta putta sem þýðir það að ég er búin að losa mig við allan þennan bjúg sem ég fékk alveg ókeypis á meðgöngunni hehe og það er magnað.. Mjaðmirnar mínar eru samt enþá hálfu númeri of stórar í buxurnar mínar en það jafnar sig maður er enþá að ganga til baka. Og vá hvað mig langar til að kaupa mér föt vildi að ég ætti sand ad seðlum til að spreða í okkur fjölskylduna hehe:haha: en ekki að það myndi gera mig eitthvað hamingjusama að eiga nóg af peningum ... maður kaupir sér ekki hamingju eða ást....ég er alveg að kafna úr hamingju, bæði yfir mig ástfangin og á undur fagran og yndislegan son og tel mig þess vegna mjög ríka þó ég eigi ekki krónu því ekki er það nú metið til fjár.

Jæja skyldan kallar prinsinn orðin svangur

Leiter

Mamman


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 15:42:00 / marleyfan

ég vil líkjast Daníel og ég vil líkjast Rut....

Já ég veit ekki afhverju ég er búin að vera með þetta lag á heilanum síðustu daga það er ekki eins og það sé spilað á Bylgjunni en hvað um það þetta lag minni mig á Sunnudagaskólann sem ég fór í á hverjum sunnudegi sem krakki og safnaði biblíumyndum:) svo var mín extra sleikja og fékk stundum fleiri en eina í hverjum tíma hehe;) Svo var það þannig þegar við sungum þetta lag saman þá áttu strákarnir að standa upp og syngja "ég vil líkjast Daníel" og svo stelpurnar að standa og syngja "ég vil líkjast Rut" ohhh góðir tímar:lol: og af því ég er að rifja upp gamla tíma þá hef ég nú alltaf verið talin mikill snyrtipinni og þoli illa drasl og ryk... og þegar ég var krakki og mamma og pabbi voru að halda upp á afmælin mín þá þurfti ég oft í miðju afmæli að reka allt liðið út úr herberginu mínu til að taka til eftir gestina sem voru náttúrulega að leika með dótið mitt en þá fór öll uppröðun og allt til andskotans og það þoldi ég illa.. og það fyndna við það að ef ég fór í fílu við mömmu og pabba þá rauk ég inn í herbergi og draslaði til hendi dótinu mínu á golfið og ef það var enginn sem skipti sér af mér strax þá fór ég náttúrulega að taka til eftir sjálfa mig gat ekki horft lengi á þetta drasl og ég hefði svo hvort sem er þurft að taka það til hehe..  gott með mig:haha::haha:

Jæja smá upprifjun hehe alltaf gaman að rifja upp gamla og góða tíma;) en mín er núna bara að njóta lífsins með litla sólargeislanum mínum sem dafnar sko vel orðin næstum 5 kg og farin að brosa og bara gaman. Maður öðlast alveg nýja sýn á lífið við að verða mamma það er bara eins og eitthvað ljós kveikni get ekki lýst þessu en maður skilur lífið svo mikið betur og ber miklu meiri virðingu fyrir foreldrum sínum því einu sinni var ég nýfædd prinsessa;) maður skilur þeirra áhyggjur og fleira. Svo horfi ég stundum á Ara Hrannar og huxa með mér þú varst inn í maganum á mér í 9 mánuði og gott betur en það og ég bjó þig til reyndar ekki ein hehe;) og svo skrítið að huxa til þess að fyrir nokkrum dögum þá var Ari Hrannar ekki til en núna verður hann alltaf hluti af okkur Bjarma þvílíkt kraftaverk:) litli ljónsunginn okkar:)

Já lífið er sko yndislegt

Móðirin


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 17:25:14 / marleyfan

Nýbökuð móðir bloggar

Jæja gott fólk þá er lilli kominn í heiminn eins og flestir vita:) fæddist drengur sunnudaginn 06. ágúst, 16 merkur og 56cm algjör gullmoli:) Fæðingin var erfið þar sem hann sat fastur í grindinni og endaði með að hann var tekin með sogklukku og var svo fyrsta sólarhringin á barnadeildinni í súrefniskassa þar sem hann var hætt kominn litli kúturinn, ég rétt fékk hann í fangið og svo var hlupið með hann á Barnadeildina. Kom svo í ljós að hann viðbeinsbrotnaði í öllum þessum átökum greyjið litla. Hann var svo lagður á brjóst sólarhringsgamall og hann tók það um leið sem er alveg frábært þær voru búnar að búa mig undir að það gæti tekið marga daga:) Núna dafnar hann bara vel og sefur á næturnar og drekkur ca 2 á nóttu algjör draumur og yndislegur í alla staði:) en þið getið svo fygst með á síðunni hans:) www.barnaland.is/barn/47554 Bjarmi hefur alveg séð um síðuna og ég fer núna að verða duglegri við það:) Við skírðum hann á Mánudaginn og hann fékk nafnið Ari Hrannar:)

Ég vil svo nota tækifærið og þakka fyrir allar kveðjurnar og allar gjafirnar sem Ari Hrannar hefur fengið.

Jæja ætla svo að sjá til með hvort ég held áfram með þessa síðu. Held að ég verði bara með síðuna hans Ara Hrannars:)

kveðjur

Lífið er yndislegt

Helgan hamingjusamasta mamman:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.08.2006 19:39:19 / marleyfan

Lilli á leiðinni:)

Jæja nú er eitthvað að gerast fórum á fæðingardeildina í morgunn og þetta er svona að gerast lilli kemur vonandi í kvöld eða nótt:) fórum bara til Birnu mágkonu þegar ég var búin í skoðun og þau eru búin að dekra þvílíkt við okkur í dag;) naglasnyrting ala Birna svo eitthvað sé nefnt:) Takk fyrir okkur *knús* við erum sem sagt að fara uppá deild til að athuga stöðuna núna svo meiri fréttir síðar:) var svo að opna síðun á Barnalandi þar koma svo fréttir og myndir:)

Helgan og Lilli verslunarmannahelgarbarn;)


» 25 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 11:12:41 / marleyfan

41 vika komin

Já lilli litli ætlar sko að láta bíða eftir sér mamma kominn til að vera viðstödd og hann/hún lætur ekki sjá sig hehe :haha: aðeins að stríða ömmu sinni en já fórum í mónitor í gær og einhverjir verkir farnir að koma samt ekkert vondir þeir hljóta nú að versna hehe en lilla líður svo 100% vel að það þurfti ekkert að skoða fylgjuna bara mónitor..... en já kemur kannski 4. ágúst eins og frændurnir hehe kemur allt í ljós ég er bara hress og kát og alveg til í að fara að koma þessu barni í heiminn langar sko 0% að láta setja mig af stað en þau sögðu á fæðingardeildinni að þess þyrfti sennilega ekki þar sem verkir væru farnir að koma og ég væri svona að fara hægt og rólega af stað svo núna bíðum við bara mín var að enda við að ryksuga og ætla að skella mér í göngutúr á eftir og njóta góða veðursins:)

LeiTer

Helgan og lilli litli stríðnispúki:haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 19:14:10 / marleyfan

Ekkert að gerast.....

Já það er ekkert að gerast enþá en svo veit maður aldrei gæti allt hrokkið af stað einn tveir og bingó:) Lilla líður greinilega vel í bumbunni á mömmu sinni:) er búin að vera með svona túrverki mjög væga reyndar í allan dag og hef verið með svoleiðis seiðing undanfarna daga en þetta kemur allt í ljós er alveg róleg enþá:) maður veit notla ekkert þar sem maður hefur ekki gert þetta áður;) En við eigum svo tíma hjá fæðingarlækni á miðvikudaginn 2.ágúst en það er einmitt dagurinn sem ég held að lilli komi:) og hef alltaf haldið að hann/hún komi:) Þá fer ég í sónar og svona meiri skoðun en hjá ljósunni:) Það væri notla bara fyndið ef lilli kæmi 4. ágúst því þá eiga Grétar bróðir og Ari bróðir báðir afmæli og einnig Ella frænka:)

Ég fór inn á akureyri í gær og þar var 24°hiti takk fyrir svona á þetta að vera:) og fékk mér notla Brynjuís með Birnu mágkonu:) svo var ákveðið að við ætluðum að borða  með Klöru og Pétri og ég hrindi í Bjarma til að athuga hvað við ættum að taka með okkur að borða og hann hrökk við hélt notla að ég væri farin af stað greyjið:) en svo var notla verið að skamma mig fyrir að vera að keyra komin rúmlega 40 vikur því ég gæti notla farið af stað hvenær sem er og jafnvel misst stjórn á bílnum aldrei má maður aldrei gera neitt :haha: nei það er satt maður þarf að passa sig ég er svo mikill sauðhaus:evil: En já skutlaði kallinum á golfvöllin áðan það er jónsmessugleði og ég fer svo um átta í grill þar vona bara að ég fari ekki af stað á leiðinni á golfvöllinn þetta er jú einhverjir 10 km að skreppa þangað það er þá allavega gott að vita að ljósan mín verður á golfvellinum hehe:) hitti hana áðan og hún sagði að ég væri alveg að fara að eiga það sæist á andlitinu á mér og þá spurði Bjarmi er þetta bara spurnig um hvað ég næ mörgum holum áður en hún hringir ??hehehe:haha:  dúllan en vá hvað hann var krúttlegur kvöldið áður en ég var skráð þá skellti hann sér í sturtu og rakaði sig því hann var alveg viss um að hann væri að fara á fæðingardeildina um nóttina:haha::haha: hélt sko að lilli kæmi á settum degi svo þegar við vöknuðum sagðist hann vera að spá í að skuttla mér inn á fæðingardeildina þar sem ég væri skráð í dag múhahaha pæliði ef maður myndi bara mæta já ég er skráð í dag!!!! múhahaha voða gerpi:)

Jæja næst kem ég vonandi með fréttir af lilla:) sendið svo helling af hríðarstraumum til okkar;)

LeiTEr

Helgan komin á tíma:)

Seinasta bumbumyndin komin 40 vikur:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:34:50 / marleyfan

vika 40 að taka enda:)

Það er allt með kyrrum kjörum enþá hjá okkur lilla enda ekki alveg komin á tíma svo það er óþarfi að vera að stressa sig eitthvað barnið kemur bara þegar það er tilbúið:) mér finnst fólkið í kringum mig miklu stressaðara en við alltaf að spyrja hvort þetta sé ekki að fara að koma og hva ekkert að gerast en verið róleg lömbin mín því það gætu jú alveg verið 2 vikur eftir hehe en þar sem maður er nærri því búin að ganga með í 40 vikur munar mann ekki um viku eða 2 til eða frá allaveg er ég alveg róleg aðeins orðin þreytt í bakinu svona seinnipartinn á daginn ekkert til að kvarta yfir annars bara hraust og hress:) finnst þetta svo lítið mál að ég á örugglega eftir að vera í þessu bara næstu árin hehe hvað ætli kallinn segji um það;) ætli maður byrji nú ekki á einu samt hehe:haha::haha: þetta er notla bara dásamlegt:) ég er semsagt skráð á fimmtudaginn svo það er aldrei að vita nema lilli komi bara á "réttum" tíma:)

Já svo er bara fæðingin framundan og hlakka ég bara til vottar ekki fyrir kvíða á þessum bæ:) hlakka til að takast á við það að koma barninu mínu í þennan heim og þó ég finni aðeins til á meðan bítterinn ég huxa að þetta er miklu erfiðara fyrir barnið og finn ekki mikið til með sjálfri mér að þurfa að finna til á meðan er líka löngu búin að ákveða að þetta verður ekkert mál:) hugurinn ber man hálfa leið ekki satt:)

Bjarmi er búin að vera undanfarna daga alveg þvílíkt duglegur að hjálpa mömmu sinni og pabba heima hjá þeim í öllum framkvæmdunum þar og ég hef bara setið úti í sólinni á meðan hehe;) sem var um helgina allavega er ekki viss um að hún láti sjá sig í dag... það er þessi blessaða þoka enþá að þvælast hérna en sjáum til:) svo hef ég bara verið í ísnum ummmm hvað hann er góður:) Bjarmi spurði mig svo í gær í kvöldmatnum hvenær ert þú svo að fara að fæða barn? Múhahahah krúttlegur:) ég kannski hendi inn línu áður en ég fer á fæðingardeildina ef það verður á næstunni annars kem ég með blogg ef lilli ætlar að láta bíða eftir sér:) hehehe hér er svo slóðin á síðuna á barnalandi en hún verður opnuð þegar lilli er kominn í heiminn: www.barnaland.is/barn/47554 megið svo senda okkur hríðarstrauma hehe;)

*Knús*

Vika 40

Þetta er vikan sem allir hafa beðið eftir!  Í lok þessarar viku ertu „á tíma“!  Það er samt ekki þar með sagt að þessi tími henti barninu þínu enda er þetta bara meðatals tími og í raun mjög ólíklegt að barnið komi akkúrat í heiminn á „settum degi“!

Barnið er kringluleitara og feitara og í sjálfu sér tilbúið að fæðast.  Nú er það 200 sinnum þyngra en það var á 12. viku.  Strákar eru oft stærri en stelpur.  Barnið vegur nú um 3,5 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 35 sm.

 

LeiTer

Helgan sem er að verða kominn á tíma:)


» 16 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 14:52:47 / marleyfan

bumban bloggar:)

kellan sest við tölvuna:) best að drita smá .. ekki sérstakt veðrið hér á Dallaz bara skýjað svo sem allt í lagi meðan það rignir ekki... Já við hjúin höfum bara verið í stanslausum matarboðum þessa viku sunnudagskvöldið kikkuðum við í bústaðinn hjá Klöru, Pétri og co og þar var mallað pasta:) á mánudaginn vorum við svo í lax og með því á Hrísum, á þriðjudaginn vorum við í Hvoli hjá Birnu og Biggó í læri og allskonar kjöti og í gær þá vorum við í mat hjá Klöru og Pétri, Friðjón og Fanney í bústanum og þar var einnig læri og kjúlli og fleira ummm alltaf gott að borða:) svo mín hefur ekki þurft að vera mjög virk í eldamennskunni þessa viku :haha::haha: á þriðjudaginn eftir Grillið í Hvoli þá fór ég með kallinum á golfvöllinn og labbaði heilan hring með honum eða rúma 5 km:) ekki laust við að ég hafi verið þreytt á eftir fann samt ekki fyrir neinni þreytu fyrr en á seinustu braut svo fann ég bara fyrir því um nóttina:) svaf eitthvað illa... hef nánast alltaf farið bara helmingin af leiðinni og þá verið búin á því núna undanfarið en lilli hefur verið extra sáttur með mömmu sína þetta skiptið hehe:) það var notla líka alveg geðveikt gott veður 14 °og logn og við vorum til að verða 23:) bara hressandi:P 

Við fórum í mæðraskoðun á miðvikudaginn og allt 100% eins og ljósan sagði og sagði svo að þetta er trúlega ljóshærður engill:) Hún er alveg mögnuð þessi kona sagði að barnið gæti komið á morgunn eða eftir 3 vikur bara erfitt að segja til um það eitthvað sem náttúran sér um:) alltaf að sást af kúlunni og sagði að þar sem allt hefði gengið svona vel á meðgöngunni blóðþrýstingurinn alltaf sá sami og allt 100% þá kæmi fæðingin mjög líklega til með að ganga jafn vel:) og manni finnst nú ekki leiðinlegt að heyra svona en nú er bara vika í daginn sem ég er skráð svo maður veit aldrei gæti komið í kvöld og svo ekki kannski fyrr en eftir 3 vikur aldrei að vita nema að lilli láti aðeins bíða eftir sér :haha::haha: en hann/hún kemur bara þegar hann/hún er tilbúin:) en við lilli erum bara hress:) er farin að finna smá fyrirvaraverki, svona daufa túrverki og notla samdrætti allt að undirbúa sig fyrir komu lilla:)

og já Sara systir Klöru eignaðist prinsessuna sína í morgunn 10 dögum áður en hún var skráð svona eridda misjafnt:) Sara og Ívar innilega til hamingju með stelpuna og gangi ykkur vel:) Sara var 4 tíma að þessu tók þetta bara með trompi þvílíkt dugleg:) svona á að gera þetta hehe:haha: 

Jæja held að ég fari að hengja út þvott og brjóta saman og svona:)

hér eru svo bumbumyndir komin 39 vikur:)

orðin stór 8|;)

LeiTer Helgan og lilli


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 14:48:55 / marleyfan

Helgarblogg hjá Helgunni:)

nú er kominn sunnudagur og kellan alveg óð í blogginu held að allir slappist á sumrin í þessu bloggi eigum við ekki að segja það bara hehe;) en nóg að gera hjá manni þessa dagana við fórum í mæðraskoðun á miðvikudaginn og var mín pínu kvíðin að fara og hitta aðra ljósmóður en svo var hún bara alveg mögnuð talaði við okkur um byrjun fæðingar og hvað maður á að gera og allt tilheyrandi og ekkert smá gott að fá svona upplýsingar sem hún kom reglulega vel til skila:) og Bjarmi var bara stútfullur af upplýsingum hehe;) svo var hún svo jákvæð sagði að kúlan væri flott og allt væri til fyrirmyndar og mér leið rosalega vel eftir þennan tíma enda finnst mér ég ekki sérlega aðlaðandi þessa dagana....en já svo er einhver undirbúningur farin að eiga sér stað þarna niðri finn ég svo maður veit aldrei hvenær dagurinn rennur upp sem lilli ákveður að láta sjá sig en við erum skráð eftir eina og hálfa viku og kemur allt saman í ljós. Sagði einmitt við Bjarma í gær að ég væri ekki alveg að trúa því að þessi meðganga væri að verða búinn og við að verða mamma og pabbi:P tíminn flýgur alveg áfram annars held ég að maður átti sig ekki á þessu almennilega fyrr en maður fær litla kraftaverkið sitt í hendurnar og því fylgir örugglega sæmilegt spennufall:)
Við fórum í bumbumyndatöku á föstudaginn svo það eru til einhverjar kúlubúamyndir:) (nauðsynlegt)svo skelltum við okkur á Greifann ummm alltaf gott að borða þar:) tókum því svo bara rólega um kveldið og á laugardagasmorgunn skullaði ég kallinum á golfvöllinn þar sem hann tók þátt í Olísmótinu og var ekki nema þremur höggum frá að vinna gasgrill frekar svekkjandi en við eigum gott grill svo það þýðir ekkert að væla yfir því :haha::haha::) Við lilli skelltum okkur bara inn á Akureyri til Birnu mágkonu á meðan kallinn sló golfkúlur:) og við kikkuðum notla í bæinn í búðir og svona:) svo er sko útsala í Gallerí og ég hefði alveg verið til í að vera búin að eiga og geta verlsað mér slatta af fötum útsalan þar er alltaf í svo fáa daga en ég fer bara á næstu útsölu þar og missi það múhhahahaha:) við fórum á kaffihús og svona líka og ég gleymdi að fara í Brynju Djöfulllll fer bara í dag í staðinn hehe... Tengdamamma borðaði svo með okkur í gær eitt stykki flatböku og ég held að ég hafi lagst uppí klukkan hálf ellefu alveg búin á því eftir að hafa vaknað klukkan 8 um morguninn hehe:haha::haha: við erum svo að spá í að kikka í dag á Klöru, Pétur, Friðjón & Fanney í sumarbúsað sem þau eru í þessa viku annars er dagurinn ekkert planaður:) nema að fá sér ís;) ég er sko íssjúk:)
Þetta er svo ca að gerast hjá okkur lilla núna:)

Vika 39

Leghálsinn gæti verið farinn að mýkjast, styttast og þannig að undirbúa sig fyrir að opnast.  Slímtappinn gæti einnig farið hvenær sem er en það getur verið merki um að fæðingin verði á næstu dögum en jafnvel fyrr.  Þú gætir fundið meira fyrir samdráttum í leginu (kúlan harðnar) en einnig gætir þú fundið fyrirvaraverki.  Samdrættir lýsa sér þannig að kúlan verður hörð án þess að konan verði vör við verki.  Fyrirvaraverkir eru samdrættir ásamt verkjum sem koma óreglulega og standa oft stutt yfir.  Verkirnir eru ekki óbærilegir en óþægilegir.  Fyrirvaraverkir hætta oft við hvíld.  Það er talið að fyrirvaraverkir geri gagn því þeir undirbúa leghálsinn með því að mýkja hann.  Fyrirvaraverkir eru algengari hjá konum sem fætt hafa áður.  Byrjandi fæðing lýsir sér með samdráttum ásamt verkjum, oft kallað hríðir eða fæðingarhríðir.  Hríðirnar koma reglulega, lagast ekki í hvíld og aukast smám saman, styttra verður á milli þeirra og hver hríð varir lengur.  Legvatn getur farið í byrjun fæðingar án þess að hríðir komi strax í kjölfarið en algengara er að legvatn fari í lok útvíkkunartímabils.

Kynfæri barnsins eru óvenju stór en það er vegna áhrifa frá þeim hormónum sem þú framleiðir.  Þetta jafnar sig nokkrum dögum eftir fæðingu.  Nú hægir aðeins á þyngdaraukningu barnsins og undirbúningur fyrir fæðinguna hefst af fullum krafti.  Barnið vegur nú um 3.2 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 34 sm.

LeiTer

Helgan og lilli sem fer bráðum að koma:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Leitarbox